Á föstudaginn síðastliðinn 26. Apríl sendi Birgir frá sér nýtt lag.
Lagið ber nafnið „Alive” og verður að finna á væntanlegri breiðskífu kappans sem lítur dagsins ljós með sumrinu. Töluverð eftirvænting er eftir breiðskífu Birgis en síðustu lög sem hann hefur sent frá sér hafa fengið töluverða athygli, notið vinsælda í útvarpi og á streymisveitum. Ber þar helst að nefna lagið Can you feel it” en því hefur verið streymt meira en 11 milljón sinnum á Spotify!
Lagið sjálft og textinn er saminn af honum Birgi ásamt Andra Þór Jónssyni og var það Arnar Guðjónsson (Leaves, Warmland) sem sá um upptökur á laginu. Umslagið vann Jakob Thorhallsson.
Birgir á Instagram
Umræðan