Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.”
Þar bregður söngvarinn geðþekki, Guðmundur Pálsson sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum, þó auðvitað sé alltaf nóg til frammi. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.
Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðmundur Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum. Sérstakur verndari verkefnisins er Jakob Frímann Magnússon.
Jólatónleikaröð Baggalúts hefst þann 6. desember í Háskólabíói og lýkur henni 21. desember. Alls heldur sveitin 18 tónleika í ár. Þar af eina táknmálstúlkaða, fimmtudaginn 19. desember. Miðasalan er á tix.is.
Umræðan