Hljómsveitin Axel O Band verður með tónleika á Græna Hattinum Laugardaginn 14.mars 2020.
Axel O er aðdáendum sveitatónlistar á Íslandi vel kunnur sem einn helsti söngvari landsins á sviði sveitatónlistar um þessar mundir. Axel sem hefur m.a. átt lag í fyrsta sæti á vinsældarlista Rásar 2 undanfarnar vikur, flytur eigin lög og sígild lög úr sveitatónlistinni.
Hljómsveitina Axel O Band skipa þeir: Axel O söngur og gítar, Magnús Kjartansson píanó, Sigurgeir Sigmundsson gítar og pedal steel, Birgir Nielsen trommur, Finnbogi Kjartansson bassi og Dan Cassidy fiðla
Þetta er eitthvað sem aðdáendur sveitatónlistar mega ekki missa af. Miðar í sölu á Tix.is.
Axel O Band á Facebook
Umræðan