Tónlistarkonan Karítas hefur sent frá sér sitt fyrsta lag, Wear Somebody Else, og myndband við það.
Karítas samdi lagið fyrir um tveimur árum og segir að upprunalega hafi það bara verið samið við lítið, ómerkilegt píanóriff. „Ég er með EPplötu (stuttskífa) í vinnslu sem kemur út snemma í haust – ef allt gengur eftir,“ segir Karítas en flest lögin eru ástarlög með „dark twist“, eins og hún orðar það. Tónlistarmaðurinn Dadykewl sem gaf út plötuna Klámstjarna á síðasta ári, útsetti lagið.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið.
Karítas á Instagram