Lagið FIRE er fyrsta lagið sem hljómsveitin Sycamore Tree sendir frá sér af sinni annari plötu sem kemur út á næsta ári. Það er ríkir mikill spenna hjá sveitinni enda er mikil vinna að baki plötunnar.
„Við höfum verið að vinna með einum farsælasta pródusent síðustu ára, Rick Nowels. Hann hefur unnið með listamönnum á borð við Lana Del Ray, Madonna, SIA, Lykke Li og hér á íslandi vinna þau með Arnari Guðjóns ( Leaves, Kaleo, Warmland ).”
Lagið Fire er unnið hér á landi með Arnari Guðjóns. Platan sem mun koma út um miðbik næsta árs verður að mörgu leiti rökrétt framhald af plötunni Shelter sem kom út 2017. Þó koma Rick og Arnar með nýja heima sem passa vel við það sem sveitin sá fyrir sér í upphafi.
Í laginu FIRE má heyra keim af sjötta áratugnum með áberandi gítörum og strengjum. Lagið fjallar um brennandi ástarloga, sambönd sem brenna upp í ástareldi. Sum sambönd lifa það af, önnur ekki. Eins og segir í texta lagsins snarað yfir á íslensku „Ástin er blind og heyrnarlaus, grimm og köld, stundum fengin að láni, stundum stolin, stundum týnd og stundum fundin“. Lagið er nú í fyrsta sæti á Rás 2 og er komin út á öllum helstu streymisveitum.
Umræðan