Tónlistartvíeykið LØV & LJÓN, sem samanstendur af þeim Agli Jónssyni og Einari Lövdahl voru að senda frá sér sína fyrstu plötu, Nætur.
LØV & LJÓN er samstarfsverkefni Egils Jónssonar og Einars Lövdahl, sem eru æskuvinir úr Vesturbænum. Kapparnir sendu frá sér ábreiðu af laginu, Ég gef þér allt mitt líf, fyrr í haust og fékk lagið frábærar viðtökur.
Platan Nætur, fjallar um ástina og örvæntingu í myrkrinu og segir Einar að það sé yfirleitt mjög skammt þar á milli.
LØV & LJÓN á Facebook
Umræðan