Vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans er í fullu svingi og á þessum tónleikum á Alþjóðlega jazzdeginum, þriðjudaginn 30. apríl koma fram söngkonan Stína Ágústsdóttir og sænski gítarleikarinn Erik Söderlind ásamt hljómsveit.
Stína Ágústsdóttir söngkona ætti að vera jazzáhugafólki Íslands kunn en síðasta plata hennar, Jazz á Íslensku, hefur notið vinsælda landsmanna síðustu tvö ár og þótti mikilvæg viðbót í jazzflóru Íslands þegar hún var tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna 2017. Stína er búsett og starfandi í Stokkhólmi en kemur reglulega til Íslands og syngur fyrir landann. Í þetta skiptið tekur hún með sér einn af vinsælustu jazzgítarleikurum Svíþjóðar, Erik Söderlind. Mike Stern lýsir honum sem undri sem spilar á einstakan hátt og með sérstaklega persónulegan tón. Erik hefur hlotið fjölda viðurkenninga og hefur leikið með tónlistarmönnum á borð við Frank Vignola, Peter Bernstein, Eric Alexander, Svante Thuresson o.fl. Erik var að gefa út plötu fyrr í mánuðinum þar sem hann leikur lög Paul McCartney og hefur fengið frábæra dóma fyrir.
Stína og Erik munu fagna alþjóðlega jazzdeginum, 30. Apríl, með gestum Múlans í ár og koma til með að leika þeirra uppáhalds sígildu jazzlög í bland við nýrri verk. Þau hafa fengið Valdimar Kolbein Sigurjónsson bassaleikara og Matthías MD Hemstock trommuleikara með sér í lið og mega áhorfendur því búast við einstökum tónleikum þar sem hefðir jazzins verða í hávegum hafðar.
Þriðjudaginn, 30. apríl, 2019 kl 21:00 í Björtuloftum Hörpu
Miðar fást á tix.is
Umræðan