Undanfarnar vikur og mánuði hefur Tónlistarborgin Reykjavík í samstarfi við ÚTÓN og Hitt húsið boðið hljómsveitunum sem komust í úrslit Músíktilrauna upp á skemmtilegt og hagnýtt námskeið.
Á námskeiðinu var farið yfir allt það helsta sem tónlistarfólk ætti að vita um tónlistariðnaðinn með léttum fyrirlestrum, pallborðsumræðum, vettvangsheimsóknum og hagnýtum verkefnum, til að mynda gerð kynningarefnis og tæknilista. Námskeiðið fór fram í apríl, maí og júní og fór kennslan fram í Tónklasanum á Laugavegi og Hinu húsinu.
María Rut Reynisdóttir verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur segir að markmiðið með Hitakassanum sé að valdefla ungt tónlistarfólk sem er að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni með því að auka þekkingu þess á tónlistariðnaðinum þannig að það verði betur í stakk búið til að þróa sinn feril og taka góðar ákvarðanir varðandi hann strax í upphafi.
Á meðal þess sem fjallað var um í Hitakassanum var réttur höfunda og flytjenda, skráning verka, forleggjarar, útgáfumál, hinir fjölmörgu samningar sem hljómsveit getur þurft að gera á ferlinum, gerð tæknilista, styrkir og styrkumsóknir, fréttatilkynningar, samfélagsmiðlar, geðheilsa í tónlist, hvernig maður kemur lagi í spilun í útvarpi, verkaskipting innan hljómsveita, hin ýmsu hugtök og hlutverk í tónlistariðnaðinum sem gott er að kunna skil á, samtök í tónlist, ímynd og sviðsframkoma og tengslamyndun.
Í Hitakassanum var mikil áhersla lögð á að efla tengsl þátttakenda við annað íslenskt tónlistarfólk og fagfólk í tónlist en margir góðir gestir heimsóttu Hitakassann til að deila reynslu sinni og þekkingu með tónlistarfólkinu, t.d. Sindri Ástmarsson, GDRN, Ólafur Arnalds, Sóley Stefánsdóttir, Guðrún Björk framkvæmdastjóri STEFs, Andrés Jónsson almannatengill, fulltrúar útvarpsstöða, Reykjavíkurdætur, Jakob Frímann Magnússon, Eiður Arnarsson framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda, Tómas Þorvaldsson lögfræðingur, Steinunn Camilla Sigurðardóttir umboðskona, Anna Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Ásgeir Trausti Einarsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Skuggi og Haffi Tempó.
Námskeiðið mældist ákaflega vel fyrir á meðal þátttakenda sem hafa haft orð á því að hver dagur í Hitakassanum hafi veitt þeim innblástur og opnað augu þeirra fyrir þeim verkefnum sem tónlistarfólk stendur frammi fyrir – að þau hafi fengið þarna á einu bretti góða kynningu á tónlistariðnaðinum og hitt fjölmargt fólk sem hefur látið til sín taka í þessum geira.
Miðvikudaginn 19. júní verður viðburður í Iðnó þar sem hljómsveitirnar sem tóku þátt í Hitakassanum hitta og leika fyrir lykilaðila í íslensku tónlistarlífi. Stefnt er að því að halda námskeiðið aftur að ári fyrir hljómsveitir sem komast á úrslitakvöld Músíktilrauna en eins hefur hér orðið til námskeið sem hægt er að halda fyrir hina ýmsu hópa í tónlistarlífinu.
Umræðan