Tónlistarkonan Karlotta Skagfield var að senda frá sér sitt fyrsta lag sem ber heitið „Playground.”
Karlotta er staðsett í London og er að læra songwriting í British and Irish Modern Music institute. Áður en hún lagði af stað til london lærði hún klassískan söng í Söngskóla Reykjavík. „Lagið fjallar í raun um það að maður getur aldrei vitað fyrirfram hvað gerist í lífinu og allt í einu getur öllu verið kippt undan manni. Þá langar manni oft að leita aftur í sakleysið sitt sem barn. ”Karlotta samdi lagið og fékk svo vin sinn Anton Rung frá Svíþjóð til þess að útsetja og mastera lagið.
Umræðan