Föstudaginn 14. febrúar verður sannkallað Prince kvöld á sjálfan Valentínusardaginn í sveittum og rómantískum kjallara Hard Rock Café við Lækjargötu.
Unnendur bandaríska tónlistarmannsins Prince ættu ekki að láta þessa tónleika fara framhjá sér fara. Það er engin önnur en Ágústa Eva Erlendsdóttir sem sér um söng, Ómar Guðjónsson gítar, Tómas Jónsson keys, Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommur og Guðmundur Óskar Guðmundsson sér um bassann. Húsið opnar klukkan 20:00. Hægt er að nálgast miða á Tix.is.
Facebook viðburðinn má sjá hér
Umræðan