Rokkdúettinn Velvet Villain var að senda frá sér frábæra ábreiðu af laginu „Bus Stop” með hljómsveitinni The Hollies.
„Okkur langaði að taka 60’s klassík og skella í hráan pönkrokkbúning, segja meðlimir dúettsins þau Gauti og Salka. „Við ákváðum að leika okkur svolítið á meðan við værum að klára næsta lag, Wicked Love, og myndbandið við það sem við erum að vinna með Árna Gylfasyni.“ En næsta lag dúettsins er væntanlegt strax í næstu viku.
Velvet Villain á Facebook
Velvet Villain á Instagram
Umræðan