Birna er 15 ára tónlistarkona úr Hveragerði en hún var að gefa út sitt fyrsta myndband sem tekið var upp í Reykjavík.
Myndbandið var tekið upp nóttina fyrir 17. júní þegar flest allar götur höfðu tæmst og hægt var að loka götum í kringum Hallgrímskirkju með aðstoð frá Reykjavíkurborg og Lögreglunni í Reykjavík. Notaðir voru drónar til að mynda Birnu úr turni Hallgrímskirkju, niður á klappirnar fyrir neðan og svo inn á Skólavörðustíginn. Um er að ræða ábreiðu af lagi Lady GaGa „Shallow” en gaman er að geta þess að Birna mun svo síðla sumars gefa út sitt fyrst lag og myndband þar sem hún semur sjálf lag og yrkir texta.
Umræðan